21.12.2022

Vilt þú leiða sér­hæfð­ar fjár­festingar hjá Stefn­i?

Stefnir leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf forstöðumanns sérhæfðra fjárfestinga sem mótar stefnu og sýn í framtaksfjárfestingum, vegna fjárfestinga í hlutafé óskráðra félaga og lánsfjármögnunar í formi millilagsfjármögnunar.

Helstu verkefni

  • Ávöxtun fjármuna framtakssjóða Stefnis í umboði viðskiptavina

  • Vöruþróun á sviði sérhæfðra fjárfestinga með sjálfbærni að leiðarljósi

  • Viðhalda sterkum tengslum við haghafa á sviði framtaksfjárfestinga

  • Leiða öflugt teymi metnaðarfulls starfsfólks, sjóðsstjóra og sérfræðinga sem vinna m.a. að:

    • greiningum á fjárfestingakostum

    • stuðla að virkri eftirfylgni með stefnumótandi ákvörðunum með það að markmiði að bæta rekstur og árangur félaga í eigu framtakssjóða Stefnis

Hæfniskröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi

  • 15 ára starfsreynsla úr atvinnulífi

  • Þekking og brennandi áhugi á íslensku atvinnulífi

  • Framúrskarandi samskiptahæfni á íslensku og ensku

  • Frumkvæði, drifkraftur og fagmennska

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis, netfang: jon.finnbogason@stefnir.is

Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar 2023 og skulu umsóknir sendar á starf@stefnir.is

Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. maí 2026

Nýir eigendur að Sóma

Framtakssjóðurinn SÍA V, sem stýrt er af Stefni hf., hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Sóma ehf., einu þekktasta og elsta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins á sviði samloka og tilbúinna rétta.

Lesa meira
27. mars 2026

Þrír nýir vefir – Arion banki, Vörður og Stefnir

Arion banki, Vörður og Stefnir mynda Arion samstæðuna sem um árabil hefur boðið viðskiptavinum heildstætt vöruframboð þegar kemur að fjármálum og tryggingum.

Lesa meira
06. mars 2026

SÍA V fjárfestir í Lava Show

Samkomulag hefur náðst milli meirihluta hluthafa Icelandic Lava Show ehf. og stofnenda félagsins, ásamt SÍA V, framtakssjóði í rekstri Stefnis, um kaup á 95% hlutafjár félagsins. Endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Lesa meira