Viðskipti með sjóði
Um sjóði
Yfirlit sjóðaSamanburður sjóðaSérhæfðar fjárfestingarSkráðir fjármálagerningarÁhættaGjöldMeðeignEldri sjóðir
Viðskipti með sjóði
Viðskipti með sjóðiSparnaður barnaFermingarmótframlagSöluaðilarSkattamál sjóðaSpurt og svarað
Sjálfbærni
Ábyrgar fjárfestingarÁrangur og markmiðÓfjárhagslegar upplýsingarStjórnarhættirUpplýsingagjöf
0
Yfirlit sjóða

Úrval sjóða er fjölbreytt og kemur til móts við ólíkar þarfir fólks.

Yfirlit sjóða
Skýrslur
HluthafafundirFjárhagsupplýsingarAtkvæðagreiðslurHálfsársbréf
Fjölmiðlar
FréttirKauphallartilkynningarMarkaðsmál
Gögn
APIPóstlisti
0
Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Stefnis og við sendum þér áhugavert efni reglulega.

Póstlisti
Starfsemi
Um StefniSkipuritStjórnStjórnarhættirGildi StefnisStarfsfólkUmsókn um starf
Reglur og samþykktir
Reglur og samþykktirReglur vegna hagsmunaáekstraRéttarúrræði viðskiptavina
Annað
Lagalegir fyrirvararMarkaðsþreifingarVefkökur
0
Stefnir hf.

Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Yfirlit sjóða

Viðskipti með sjóði

Engin kaupþóknun, ekkert afgreiðslugjald og engin krafa um lágmarkskaup í sjóðum í Arion appinu.

Viðskipti með sjóðiInnskráning í netbanka
Um Stefni

Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjármálastofnun skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Félagið starfar á grundvelli starfsleyfa frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Auk þess tekur starfsleyfi rekstrarfélagsins til eignastýringar, fjárfestingaráðgjafar og vörslu og umsýslu hlutdeildarskírteina eða hluta sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf.

Hafðu samband

Opið virka daga 9-16

+354 444 7400

stefnir@stefnir.is

Styttu þér leið
StarfsfólkStjórnSpurt og svaraðFjárhagsupplýsingarReglur og samþykktirPersónuverndaryfirlýsing
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedIn


Stefnir hf.

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 700996 - 2479

Lagalegir fyrirvararStillingar fótspora
  1. Sjóðir
  2. ▸
  3. Innlend hlutabréf Vogun

Stefn­ir - Inn­lend hluta­bréf Vog­un hs.

Þetta er markaðsefni

Athugið að þetta er ekki bindandi samningur heldur markaðsefni. Vinsamlega skoðaðu útboðslýsingu verðbréfasjóðsins og lykilupplýsingar og byggðu ekki endanlega fjárfestingarákvörðun eingöngu á þessum upplýsingum.

Fyr­ir hvern er sjóð­ur­inn

Sjóðurinn fjárfestir í skráðum íslenskum hlutabréfum eða félögum með starfsemi á Íslandi og getur nýtt sér skuldsetningu og afleiður. Hann hentar fjárfestum sem sækjast eftir hærri ávöxtun og þola nokkrar sveiflur í ávöxtun. Ráðlagður lágmarkstími fjárfestingar er þrjú ár.

Kaupa í sjóðiLykilupplýsingar
Sveifl­ur í ávöxt­un
Áhættuvísir sjóðs sýnir heildaráhættu hans, þar sem hærra gildi þýðir meiri áhættu sem getur leitt til meiri hagnaðar eða taps. Áhættan byggist á sveiflum í verði undirliggjandi eigna.
Ráð­lagð­ur fjár­fest­ing­ar­tími
Ráðlagður fjárfestingartími er sá lágmarkstími sem mælt er með að halda fjárfestingu í sjóðnum, með tilliti til fjárfestingarstefnu hans og sveiflna í ávöxtun.
Kaupa í sjóðiLykilupplýsingar

Fjárfestingarstefna

Markmið sjóðsins er að fjárfesta einkum í hlutabréfum íslenskra hlutafélaga og félaga með starfsemi á Íslandi, sem skráð eru á Nasdaq, First North, eða öðrum verðbréfamarkaði. Sjóðnum er einnig heimilt að fjárfesta í óskráðum íslenskum hlutafélögum.

Stefnir – Innlend hlutabréf Vogun hs. er sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta sem mun beina fjárfestingum sínum að þeim fjárfestingarkostum sem að mati rekstraraðila eru líklegastir til að skila sem bestri ávöxtun. Sjóðurinn getur fjárfest í skráðum og óskráðum fjármálagerningum sem fela í sér mikla áhættu auk þess getur sjóðurinn notað skuldsetningu og afleiður. Skuldsetning getur leitt til aukinna sveiflna í afkomu sjóðsins og tapsáhættu

Skjöl

Lykilupplýsingar
Útboðslýsing
Árs- og árshlutareikningur sjóðs
Skattamál sjóða

Fjárfestingarheimildir

Lágmark

Hámark

Hlutabréf skráð á Nasdaq Ísland og First North

25%

100%

Hlutabréf skráð erlendis (félög með starfsemi á Íslandi)

0%

75%

Óskráð innlend hlutabréf

0%

25%

Innlán fjármálafyrirtækja

0%

75%

Stöðutaka í afleiðum

0%

50%

Sérhæfðir sjóðir skv. 6. tl. 1. mgr. 89. gr. laga nr. 45/2020

0%

20%

Skuldabréf með breytirétti

0%

25%

Aðrir fjármálagerningar en getið er hér fyrir ofan

0%

20%

Al­menn­ur fyr­ir­vari vegna fjár­fest­inga í sjóð­um

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að áhætta af fjárfestingu eykst ef hún er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna sveiflna í ávöxtun. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.

Sérhver fjárfestir er hvattur til að framkvæma eigin athuganir og greiningar, m.a. kynna sér viðeigandi upplýsingaskjöl og leggja sjálfstætt mat á slík skjöl áður en ákvörðun er tekin um tiltekna fjárfestingu. Í útboðslýsingu og lykilupplýsingum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður telst verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Varðandi þá sjóði sem er að finna á vefsíðu Stefnis þá má nálgast útboðslýsingu, lykilupplýsingar o.fl. vegna viðkomandi sjóðs með því að smella á heiti sjóðs. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.

Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem Stefnir telur áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Stefnir ber enga ábyrgð á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.