Mínar síður
Um sjóði
Yfirlit sjóðaSamanburður sjóðaSérhæfðar fjárfestingarSkráðir fjármálagerningarÁhættaGjöldMeðeignEldri sjóðir
Viðskipti með sjóði
Viðskipti með sjóðiSparnaður barnaFermingarmótframlagSöluaðilarSkattamál sjóðaSpurt og svarað
Sjálfbærni
Ábyrgar fjárfestingarAð­ferðafræðiÁrangur og markmiðÓfjárhagslegar upplýsingarStjórnarhættirUpplýsingagjöf
0
Yfirlit sjóða

Úrval sjóða er fjölbreytt og kemur til móts við ólíkar þarfir fólks.

Yfirlit sjóða
Skýrslur
HluthafafundirFjárhagsupplýsingarAtkvæðagreiðslurHálfsársbréf
Fjölmiðlar
FréttirKauphallartilkynningarMarkaðsmál
Gögn
APIPóstlisti
0
Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Stefnis og við sendum þér áhugavert efni reglulega.

Póstlisti
Starfsemi
Um StefniSkipuritStjórnStjórnarhættirGildi StefnisStarfsfólk
Reglur og samþykktir
Reglur og samþykktirReglur vegna hagsmunaáekstraRéttarúrræði viðskiptavina
Annað
Lagalegir fyrirvararMarkaðsþreifingarVefkökur
0
Stefnir hf.

Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Yfirlit sjóða

Viðskipti með sjóði

Engin kaupþóknun, ekkert afgreiðslugjald og engin krafa um lágmarkskaup í sjóðum í Arion appinu.

Viðskipti með sjóðiInnskráning í netbanka
Um Stefni

Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjármálastofnun skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Félagið starfar á grundvelli starfsleyfa frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt heimild í lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Auk þess tekur starfsleyfi rekstrarfélagsins til eignastýringar, fjárfestingaráðgjafar og vörslu og umsýslu hlutdeildarskírteina eða hluta sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf.

Hafðu samband

Opið virka daga 9-16

+354 444 7400

stefnir@stefnir.is

Styttu þér leið
StarfsfólkStjórnSpurt og svaraðFjárhagsupplýsingarReglur og samþykktirPersónuverndaryfirlýsing
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedIn


Stefnir hf.

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 700996 - 2479

Lagalegir fyrirvararStillingar fótspora
  1. Sjóðir
  2. ▸
  3. Katla Fund - Government Bonds Icelandic

Katla Fund - Go­vern­ment Bonds Icelandic

Þetta er markaðsefni

Athugið að þetta er ekki bindandi samningur heldur markaðsefni. Vinsamlega skoðaðu útboðslýsingu verðbréfasjóðsins og lykilupplýsingar og byggðu ekki endanlega fjárfestingarákvörðun eingöngu á þessum upplýsingum.

Árangur

Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Verðþróun sjóðs eða gengi endurspeglar breytingar á virði eigna hans yfir tíma. Gengið tekur tillit til tekna og kostnaðar, þar á meðal umsýsluþóknunar.

Verðþróun

1 ár
​
Ávöxtun

Uppruni gagna: Stefnir hf.

Grunnupplýsingar

Eignasamsetning

10 stærstu út­gef­endur - 30.06.2026

Útgefandi

Markaðsvirði

Hlutfall

Ríkissjóður Íslands

6.781,4 m.kr.

100,0%

Fjárfestingarstefna

Katla Fund - Government Bonds Icelandic er verðbréfasjóður sem fjárfestir að mestu í skuldabréfum útgefnum af eða með ábyrgð íslenska ríkisins, þar á meðal ríkisskuldabréfum, ríkisvíxlum og öðrum fjármálagerningum með ríkisábyrgð. Stefnt er að því að meðallíftími sjóðsins sé á bilinu 4-7 ár. Slíkur meðallíftími getur haft í för með sér töluverðar sveiflur í virði sjóðsins í takt við þróun vaxta og ávöxtunarkröfu á markaði.

Grunnmynt sjóðsins er evra (EUR). Þar sem fjárfestingar sjóðsins eru í íslenskum krónum getur gengisþróun haft áhrif á virði hans.

Sjóðurinn hentar vel þeim fjárfestum sem þola töluverðar sveiflur í ávöxtun og vilja fjárfesta til lengri tíma.

Skjöl

Lykilupplýsingar Class A
Lykilupplýsingar Class B
Útboðslýsing
Skattamál sjóða
Lykilupplýsingar á öðrum tungumálum

Fjárfesingarheimildir

Minimum

Maximum

Skráð skuldabréf og víxlar útgefnir af eða með ábyrgð íslenska ríkisins

80%

100%

Innlán fjármálafyrirtækja og peningamarkaðsskjöl

0%

20%

Áhætta tengd fjárfestingu

Fjárfesting í sjóðnum felur í sér ýmsa áhættu sem getur haft áhrif á ávöxtun og leitt til þess að hluti eða öll fjárfesting tapist. Áður en fjárfest er ættu fjárfestar að kynna sér vandlega útboðslýsingu, upplýsingablað og lykilupplýsingar og meta eigin fjárhags- og skattalega stöðu.

Verðmæti hluta sjóðsins getur sveiflast vegna markaðs-, efnahags-, stjórnmála- og umhverfisþátta. Helstu áhættur eru meðal annars:

  • Markaðs- og hlutabréfaáhætta:

Verð hlutabréfa og annarra verðbréfa getur hækkað eða lækkað vegna almennra markaðssveiflna, breytinga á afkomu eða framtíðarhorfum útgefenda.

  • Skuldabréfa- og vaxtaáhætta:

Gildi skuldabréfa getur lækkað ef vextir hækka eða útgefandi lendir í greiðsluerfiðleikum.

  • Lánshæfis- og mótaðiláhætta:

Útgefendur eða samningsaðilar geta brugðist skuldbindingum sínum.

  • Gjaldeyris- og lausafjáráhætta:

Gjaldeyrisbreytingar og takmarkað lausafé á markaði geta haft áhrif á ávöxtun.

  • Áhætta á nýmarkaðssvæðum:

Pólitísk óstöðugleiki, veik stjórnsýsla eða óáreiðanleg gögn geta aukið áhættu.

  • Samþjöppunaráhætta:

Fjárfesting í ákveðnum geirum, svæðum eða eignaflokkum getur aukið sveiflur.

  • Afleiðuáhætta:

Notkun fjármálalegra afleiða getur aukið bæði mögulegan hagnað og tap.

  • Áhætta tengd fjárfestingarsjóðum og verðbréfalánum:

Getur leitt til aukinna gjalda, minni lausafjárstöðu eða tapi réttinda.

  • Skattaáhætta:

Breytingar á skattalögum eða heimtum geta haft neikvæð áhrif á ávöxtun.

  • UFS-áhætta:

Notkun viðmiða vegna umhverfis- og félagsþátta og stjórnahátta getur takmarkað fjárfestingarkosti og haft áhrif á frammistöðu.

Al­menn­ur fyr­ir­vari vegna fjár­fest­inga í sjóð­um

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að áhætta af fjárfestingu eykst ef hún er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna sveiflna í ávöxtun. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.

Sérhver fjárfestir er hvattur til að framkvæma eigin athuganir og greiningar, m.a. kynna sér viðeigandi upplýsingaskjöl og leggja sjálfstætt mat á slík skjöl áður en ákvörðun er tekin um tiltekna fjárfestingu. Í útboðslýsingu og lykilupplýsingum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður telst verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Varðandi þá sjóði sem er að finna á vefsíðu Stefnis þá má nálgast útboðslýsingu, lykilupplýsingar o.fl. vegna viðkomandi sjóðs með því að smella á heiti sjóðs. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.

Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem Stefnir telur áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Stefnir ber enga ábyrgð á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.

Stefnir hf. gæti ákveðið að hætta markaðssetningu sjóðsins í samræmi við 93. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB frá 13. júlí 2009 um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum að því er varðar verðbréfasjóði (UCITS) og 32. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2011/61/ESB frá 8. júní 2011 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Réttarúrræði viðskiptavina

Réttindi fjárfesta, þar á meðal upplýsingar um meðferð kvartanna og úrlausna, má finna undir réttarúrræði viðskiptavina.

Fyrir hvern er sjóðurinn

Sjóðurinn fjárfestir fyrst og fremst í verðtryggðum og óverðtryggðum skuldabréfum útgefnum af eða með ábyrgð íslenska ríkisins. Hann hentar þeim sem vilja fjárfesta á íslenskum skuldabréfamarkaði til meðallangs eða langs tíma og geta þolað sveiflur í ávöxtun.

Grunnmynt sjóðsins er evra (EUR) og ráðlagður lágmarkstími fjárfestingar er þrjú ár.

Kaupa í sjóði
Sveifl­ur í ávöxt­un
Áhættuvísir sjóðs sýnir heildaráhættu hans, þar sem hærra gildi þýðir meiri áhættu sem getur leitt til meiri hagnaðar eða taps. Áhættan byggist á sveiflum í verði undirliggjandi eigna.
Ráð­lagður fjár­festingar­tími
Ráðlagður fjárfestingartími er sá lágmarkstími sem mælt er með að halda fjárfestingu í sjóðnum, með tilliti til fjárfestingarstefnu hans og sveiflna í ávöxtun.
Kaupa í sjóði