Rótgróið fyrirtæki sem stýrir fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.
Umboðsskylda Stefnis er rík og felur í sér að ávallt skulu teknar ákvarðanir fyrir hönd sjóða með hagsmuni eigenda sjóðanna í fyrirrúmi.
Sjóðir Stefnis kaupa og selja fjármálagerninga á markaði fyrir milligöngu verðbréfamiðlana. Þær verðbréfamiðlanir sem Stefnir á viðskipti við fyrir hönd sjóða geta verið innanlands og erlendis allt eftir eðli þeirra fjármálagerninga sem viðskipti eru með hverju sinni. Þeir aðilar sem teljast hæfir til þess að vera gagnaðilar Stefnis í viðskiptum með fjármálagerninga skulu undirgangast sérstaka áreiðanleikakönnun samkvæmt reglum Stefnis þar um.
Nokkur munur getur verið að umfangi þeirra viðskipta sem fara í gegnum verðbréfamiðlanir, almennt eru t.d. ekki greiddar viðskiptaþóknanir í frumútboðum en þá greiðir söluaðilinn þóknunina.
Stefnir hefur sett sér stefnu um verklag við framkvæmd viðskiptafyrirmæla þar sem útskýrt er með hvaða hætti viðskipti með verðbréf sjóða í rekstri félagsins skulu fara fram.
Útdráttur úr stefnunni lýsir því hvernig heildarmat á viðskiptaverði og kostnaði er almennt mikilvægasti þátturinn við mat á bestu framkvæmd.
